sunnudagur 5. febrúar 2012, klukkan 03:20
18.3.2010 10:55:45

Sala á CR-Z fram úr björtustu vonum

Á fyrstu tveimur vikunum sem Honda CR-Z hefur verið í sölu í Japan hefur sala farið fram úr björtustu vonum, en um 7.000 bílar hafa verið seldir á þessum stutta tíma. Upphafleg áætlun Honda í Japan gerði ráð fyrir sölu á 14.000 bílum árlega. Honda CR-Z er áætlaður til sölu í Bandaríkjunum og Evrópu nú í sumar.

Honda CR-Z er fyrsti beinskipti Hybrid bíllinn sem framleiddur hefur verið. Bíllinn býr yfir þríþættu aksturskerfi, sem gerir ökumanni kleift að velja milli þriggja aksturshátta, Sport, Normal, Eco, allt gert með því að breyta viðbrögðum eldsneytisgjafar, stýringar, tímamælingar lausagangs, loftkælingar og hversu mikil aðstoð kemur frá IMA kerfinu.



Til baka
BERNHARD ehf. • Vatnagörðum 24 - 26 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • Fax 520 1101 • Netfang skiptibord@bernhard.is