PCX hjólin komin í hús

Á frábæru verði eða aðeins kr. 629.000
Hagstæður kostur með aðeins 2,2L/100km eyðslu
Vinsældir minni bifhjóla eru vaxandi í Evrópu. Hækkandi eldsneytisverði og aukin vitund um umhverfismál hefur haft áhrif á hvernig við teljum hagkvæmast að komast á milli staða. Hinsvegar er staðreyndin sú að það er ekki bara einstaklega lágur rekstrarkostnaður og hæfni til að komast auðveldlega í gegnum umferð á háannatíma sem gera minni bifhjól aðlaðandi. Þetta snýst líka um ánægju, frelsi og sjálfstæði sem aðeins farartæki á tveimur hjólum getur veitt.
Honda PCX var hannað fyrir ökumenn sem vilja bifhjól búið hagkvæmum kostum minni bifhjóla, en með nútímalegt og sportlegt útlit oftar tengdu við mótorhjól með stærri vélar. Í alla staði, allt frá lítilli hljóðmengun, minni losun CO2 í umhverfið ásamt auðveldri stjórnun og nýtískulegu útliti, er Honda PCX hannað sem hagkvæmt, lipurt og skemmtilegt farartæki.
Tæknin í nýja Honda PCX hefur verið vandlega valin til að búa til skemmtilegustu upplifun mögulega í sínum flokki. Vélin vinnur hljóðlega og mjúklega og skilar góðum afköstum. Léttbyggð SOHC vélin er furðu kraftmikil, með vatnskælingu og innbyggðan vatnskassa í vélina til að gera hana fyrirferðaminni og léttari. Vélin er búin Honda PGM-FI beinni innspýtingu sem tryggir fumlausa og fyrirhafnalitla vinnslu í gegn um V-reimaskiptinguna, sem jafnframt minnkar mengun og eldsneytiseyðslu. Á Honda PCX kemstu um 100 kílómetra vegalengd á aðeins 2.22 lítrum af bensíni*, sem þýðir nægan tíma til ánægjulegs aksturs áður en þú þarft að fara á bensínstöð og fylla á 6.2 lítra bensíntankinn.
Eldsneytisnýting vélarinnar er aukin enn frekar með því að bæta við nýjungum eins og hægagangs-stöðvun (Idle Stop Switch) fyrst hjá Honda. Þegar hægagangs-stöðvun er gerð virk, stöðvast vélin sjálfkrafa eftir 3 sekúndur í hægagangi. Hún fer svo aftur í gang um leið og inngjöf er snúið. Hægagangs-stöðvun er gerð virk eða óvirk með þægilegum rofa hægra megin á stýrinu, og bætir sparneytni allt að 5%.*
Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um PCX hjólið.
*Tölur frá framleiðanda. Eldsneytiseyðslu tölur fyrir PCX eru: 2,17L/l00km með hægagangs-stöðvun.
Til baka
