Peugeot kynnir nýjungar á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt

Peugeot kynnti nú í ágúst þær tækninýjungar sem þeir ætla að sýna á 63. alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt, 17. – 27. september.
Í gegnum árin hefur Peugeot verið leiðandi bílaframleiðandi á sviði tækni og umhverfisvænna bifreiða. Frá því að þeir þróuðu FAP smáagnasíuna hefur hún verið seld í 2.1 milljón bifreiða og í dag eru seldir 24 mismunandi tegundir af Peugeot sem eru með og undir 130g/km CO2 útblástursgildi.
Hybrid4
Á bílasýningunni í Frankfurt kynnir Peugeot nýtt dísil-hybrid kerfi, Hybrid4. Kerfið er með afl allt að 200 hestölflum og dregur úr eldsneytiseyðslu og CO2 útblæstri um allt að 35%. Einnig er kerfið er með með stillingu fyrir „engan útblástur“ sem býður upp á umhverfisvænan og hljóðlátan akstur.
Tvær bifreiðar eru á sýningunni sem eru útbúnar með Hybrid4 kerfinu, RCZ Hybrid4 og 3008 Hybrid4.
Peugeot 5008
Ný fjölskylduvæn fjölnotabifreið hlaðin þægindum og tækninýjungum. Í boði verður bæði 5 og 7 manna útgáfa. Hægt er að velja um 6 mismunandi vélar: Allt frá 120hp bensínvél og upp í 163hp dísilvél. Meðal tækninýjunga er viðbót við fjarlægðarskynjara sem mælir stærð þess svæðis sem fyrirhugað er að leggja í til að aðstoða við lagningu. Gaumljós gefur til kynna hvenær hagstæðast sé að skipta um gíra til að ná fram lágmarks eldsneytiseyðsli og draga út útblæstri CO2. Peugeot hefur einnig þróað nýtt afþreyingarkerfi sem kallast WIP (World in Peugeot), WIP hljóðkerfi, WIP Bluetooth búnaði, WIP leiðsögukerfi, WIP Com 3D kortakerfi. Einnig er hægt að fá JBL hljóðkerfi með bílnum.
RCZ
Aðeins tveimur árum eftir að hinn marglofaði hugmyndabíll 308RCZ var kynntur í Frankfurt, frumsýnir Peugeot RCZ, 2+2 sportbíl sem er áætlaður í sölu um mitt næsta ár í Evrópu. Við framleiðslu bílsins unnu hönnuðir og verkfræðingar Peugeot saman og settu sér metnaðarfullt markmið um aksturseiginleika og framleiðslugæði, til að gefa bílnum einkennandi og sterkt útlit. Vorið 2011 kemur RCZ í Hybrid4 útfærslu, með 2.0 HDi FAP dísilvél samtals 200 hestöfl og fjórhjóladrifinn, CO2 útblástur 95g/km.
Tölulegar staðreyndir um fyrsti 6 mánuði hjá Peugeot:
Heildarsala: 937.000 bifreiðar
Markaðshlutfall í Evrópu: 7,1%
Markaðshlutfall sendibíla í Evrópu: 11,8%
Sjötti stærsti framleiðandi í Evrópu
Yfir 50% seldra bíla í Evrópu er með minna en 130g/km af CO2 útblæstri
Hlaut titilinn „International Engine of the Year” (1.6 THP 175hö bensínvél) þriðja árið í röð
42% af sölu er utan Evrópu, miðað við 37% fyrstu sex mánuðina 2008
Peugeot seldur í 160 löndum
Nýjar tegundir fyrstu 6 mánuði: 206+, 308CC og 3008
Nýjar tegundir seinni hluta árs 2009: Nýr 207
Til baka
