200.000km vélaábyrgð Peugeot - óháð aldri

Nú 1. apríl tók í gildi ný viðbótarábyrgð fyrir eigendur Peugeot bifreiða. Um er að ræða 200.000km vélaábyrgð óháð aldri bifreiðarinnar og gildir hún fyrir alla Peugeot einkabíla sem hafa verið seldir eftir 1. janúar 2006 af viðurkenndum söluaðila Peugeot á Íslandi.
• Ábyrgð á vélinni þinni – upp að 200.000 km óháð aldri
• Meira öryggi
• Enginn kostnaður við vélartjón
• Hærra endursöluverð
Hvað þarf ég að gera til að falla undir vélarábyrgð Peugeot?
Ef þú ert með þjónustubókina á hreinu gildir ábyrgðin sjálfkrafa fyrir bílinn þinn. Ef ekki getur þú enn bætt úr því ef bíllinn þinn er ekinn minna en 200.000 km og a.m.k. tvær síðustu þjónustuskoðanir ásamt vottuðum tímareimarskiptum hefur farið fram á viðurkenndu Peugeot verkstæði.
Bíllinn þinn þarf að vera seldur eftir 1. janúar 2006 af viðurkenndum söluaðila Peugeot á Íslandi. Bíllinn má ekki hafa verið notaður í atvinnuskyni (leigubíll, sendibíll eða VSK-bíll) og ekki vera með breytta vél.
Ókeypis ábyrgð
Í grundvallaratriðum er ábyrgðin ókeypis en við förum þó fram á að a.m.k. tvær síðustu þjónustuskoðanir hafi farið fram á réttan hátt hjá viðurkenndum þjónustuverkstæðum Peugeot. Þannig getum við verið 100% vissir um að vélinni í bílnum þínum hefur verið rétt haldið við samkvæmt fyrirmælum. Það er því ekki farið fram á mikið.
Eftirfarandi fellur undir ábyrgð:
Viðgerð á öllu innan í vélarblokkinni – þ.e.a.s.:
• Tímareim
• Smurolíudæla
• Hedd
• Ventlaarmar
• Ventlar
• Slífar
• Ventlaundirlyftur
• Knastás
• Vélarblokk
• Stimpilstangir
• Stimplar
• Stimpilhringir
• Sveifarás
• Legur (höfuð- og stangarlegur)
Ábyrgðin nær ekki yfir hefðbundna slithluti utan vélarinnar, þ.e.a.s. vatnsdælu, startara, rafal og slíkt né skaða sem þessir hlutar valda. Ábyrgðin nær heldur ekki yfir minni viðgerðir, svo sem skipti á heddpakkningum eða pakkdósum sem leka. Ábyrgðin nær ekki yfir flutningsbíla, leigubíla eða bíla sem eru notaðir í leiguakstur. Þær viðgerðir sem ábyrgðin nær yfir skulu fara fram hjá þjónustuverkstæðum Peugeot.
Aukið öryggi og hærra endursöluverð
Vélarábyrgð Peugeot mun án efa auka öryggi þitt í daglegu lífi. Stærri vélarviðgerðir falla nefnilega undir stærstu kostnaðarliði sem maður getur fengið á sig sem bíleigandi. Þetta öryggi fylgir bílnum svo í raun þegar hann er seldur aftur sem notaður bíll – svo framarlega sem nýi eigandinn framfylgi einnig skilmálunum. Svo fyrir utan að veita þér ómælt öryggi mun ábyrgðin einnig hafa góð áhrif á endursöluverð bílsins þíns – það er að segja ef þú hefur áhuga á að selja hann! Punkturinn yfir i-ið er svo akstursánægjan sem fylgir því að aka um á Peugeot sem er vel haldið við.
Peugeot vélarábyrgð – fyrir nýrri og eldri bíla
Við hjá Peugeot stöndum við gæðastimpil bílanna okkar – hvort sem bíllinn þinn er nýr eða nokkurra ára gamall. Því bjóðum við þér upp á hagstætt öryggi með vélarábyrgðinni. Þetta er ókeypis tilboð sem kemur í kjölfarið þegar ábyrgð fyrir nýja bíla rennur út og tryggir vélina í öllum Peugeot einkabílum upp að 200.000 km, burtséð frá aldri bílsins. Þetta er okkar leið til að umbuna tryggum viðskiptavinum okkar með auknu öryggi.
Viltu vita meira?
Hafðu endilega samband við sölumann eða viðurkennd þjónustuverkstæði Peugeot til upplýsinga um hvort þinn bíll fellur undir framlengda vélaábyrgð sem Peugeot býður upp á.
Þér er alltaf velkomið að spjalla við Peugeot þjónustuverkstæðið þitt ef þú vilt vita meira um vélarábyrgð Peugeot eða ef þú ert í vafa um hvort Peugeot bíllinn þinn fellur undir ábyrgðina.
Til baka
