fimmtudagur 9. september 2010, klukkan 01:40


 

2007
Fyrstu fjórir mánuðir í rekstri Bernhard ehf. lofa góður fyrir árið í heild. Nýr Honda CRV var frumsýndur og er hann nú mesti seldi bensínbíllinn á Íslandi. Markaðshlutdeild Bernhard er nú orðin 8,9% og má reikna með aukningu á henni er líða tekur á árið. Hjólasalan á árinu stefnir í enn eitt metið, eða yfir 350 hjól. Hjá Bernhard ehf. starfa um 50 manns.

2006
Bernhard ehf. tekur yfir rekstur söludeildar í Reykjanesbæ. Sölu – og þjónustuaðili Bernhard á Akranesi, Bílver opnar nýja og glæsilega aðstöðu í 1.000fm húsnæði. Bílasalan náði 1.250 eintökum með 7,3% markaðshlutdeild. Mótorhjólasalan fór langt fram úr björtustu vonum og voru yfir 250 ný hjól afgreidd á árinu. Bernhard ehf. opnar fullbúna þjónustudeild fyrir mótorhjól.

2005
Árið 2005 var Bernhard ehf. sérlega hagstætt. Heildarsala nýrra fólksbíla fór yfir 1.500 eintök með markaðshlutdeild um 8,4%. Bifhjólasala hefur vaxið gríðarlega síðustu ár og hefur sala Honda hjólanna vaxið með eindæmum mikið. Bernhard ehf. vinnur að undirbúningi að útvíkkun þjónustunets á Íslandi. Standsetning fær nýja og mun betri aðstöðu.

2004
Besta bílasöluár Bernhard ehf. til þessa. Afhentir voru um 1000 nýjar Honda og Peugeot bifreiðar til hamingjusamra kaupanda á árinu.

2002 - 2003
Unnið við breytingar á húsinu Vatnagörðum 26 og 1. október 2003 er starfsemi verkstæðisins flutt þangað. Við það stækkar verkstæðið nær þrefallt og öll þjónustan í tengslum við umboðið í næsta húsi. Keyptar voru nýjar lyftur, verkfæri endurnýjuð, rafmagn-, loft- og smurlagnir samkvæmt nýjustu kröfum. Gerðar eru miklar kröfur um vönduð vinnubrögð sem og menntun og þjálfun starfsmanna. Umgengni og þrif í hæsta flokki enda gengur verkstæðis salurinn undir nafninu „Skurðstofan". Standsetning nýrra bíla er einnig í húsinu.

2001
Í júlí 2001 fjárfestir Bernhard ehf. í nýju húsnæði, Vatnagörðum 26. Húsnæðisvandamál fyrirtækisins eru þannig leyst til nokkurra ára og hefur sýningarsalur fyrirtækisins nú þegar verið stækkaður úr 240fm í rúmlega 600fm. Í sýningarsalnum verða daglega sýndar yfir 15 mismundandi útfærslur af Honda og Peugeot bílum. Einnig er aukin aðstaða fyrir Aflvéladeildina og Mótorhjóladeildina.

2000
Gunnar Bernhard ehf. tók við umboðinu fyrir Peugeot 1. febrúar 2000. Peugeot var mikill happafengur fyrir fyrirtækið. Framleiðsla Peugeot passar sérlega vel að framleiðslu Honda og merkin styðja hvort annað á allan hátt. Má segja að nú sé fyrirtækið komið í það horf sem eigendur þess hafa lengi stefnt að. Hagkvæmni stærðarinnar er nú nýtt að fullu til aukinnar þjónustu og meiri sveigjanleika.
Fyrsta maí 2000 var opnað nýtt bifvélaverkstæði fyrir Honda og Peugeot að Dalvegi 16c í Kópavogi. Verkstæðið er búið nýjustu tækjum og þar vinna sérþjálfaðir bifvélavirkjar.  Til aðlögunar breyttum tímum var ákveðið að taka upp nýtt nafn: BERNHARD ehf. Einnig var hannað og tekið í notkun nýtt merki (logo) - sameiningartákn fjölbreyttari rekstrar.

 

 

Næsta síða

BERNHARD ehf. • Vatnagörðum 24 - 26 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • Fax 520 1101 • Netfang skiptibord@bernhard.is